Sálmur 70

Fornt andstef - Latn. sálm. - Sigurbjörn Einarsson
Í frönsku handriti f. 15. öld - Thomas Helmore 1856

Kom þú, kom, vor Immanúel,
og leys úr ánauð Ísrael,
lýðinn þinn, sem í útlegð er,
og hlekki ber, uns sjálfan þig hann sér.
Ó, fagn ið nú! - Immanúel
mun fæðast sínum Ísrael

2 Kom þú með dag á dimma jörð,
þín væntir öll þín veika hjörð.
Lækna þrautir og þerra tár,
græð þú, Kristur, öll dauðans djúpu sár.
Ó, fagnið nú! - Immanúel
mun fæðast sínum Ísrael.

3 Kom þú, kom, Davíðs arfi dýr,
því máttinn þinn allt myrkur flýr.
Lát þú opnast þíns himins hlið,
kom, Guðs sonur, með frelsi þitt og frið.
Ó, fagnið nú! - Immanúel
mun fæðast sínum Ísrael.