Sálmur 69
Kingo - Helgi Hálfdanarson
Niels W. Gade 1836 - Sb. 1801
Upp gleðjist allir, gleðjist þér,
í Guði vorum fagna ber,
vort hjálpráð nú er nærri.
ó, heyrið blíðan boðskap þann,
að borinn er í manndóm hann,
sem Guð er, himnum hærri.2 Burt, hryggð, úr allra hjörtum nú,
kom, heilög gleði, svo í trú
vér Jesú faðmað fáum,
og elskan heit af hjartans rót
þeim himingesti taki mót
með lofsöngs hljómi háum.3 Ó, virztu, góði Guð, þann frið,
sem gleðin heims ei jafnast við,
í allra sálir senda,
og loks á himni lát oss fá
að lifa jólagleði þá,
sem tekur aldrei enda