Sálmur 68
Ambrosius? - Sigurbjörn Einarsson
Hymnalag frá 15. öld - M. Weisse 1531 - Sb. 1589
Skaparinn stjarna, Herra hreinn,
sem hverri sálu lýsir einn,
Kristur, sem allan leystir lýð,
líknsamur vorum bænum hlýð.2 Mæddi þinn hug vor mikla neyð,
með oss þín heilög elska leið,
þú vildir frelsa veröld þá,
er villt og sek í myrkri lá.
3 Þú komst með dögun, Drottinn hár.
Sem dimman flýr við morgunsár,
eins breiddist ljós þitt bjart um heim,
brosir allt líf í geisla þeim.4 Þú ert það orð, sem allt er frá
og öllu ráða og stjórna má,
það föður orð, sem flutt þá var,
er fæddist ljós og stjörnurnar.5 Eins muntu síðast, Drottinn dýr,
dæma það allt, sem með oss býr,
og skapa nýjan, hreinan heim.
Hjálpa þú oss á degi þeim.6 Himnar og jörðin hneigi þér,
helja og allt, sem skapað er.
Viljinn þinn góði, valdið þitt,
veki og lífgi hjartað mitt.