Sálmur 67

Ambrosius - 1. og 3. v. endurkv. - Sigurbjörn Einarsson
Fornkirkjulegur sálmur - hjá M. Eisse 1531 - sb. 1589

NÚ kemur heimsins hjálparráð,
helgasta líf í duftið sáð.
Soninn Guðs eina, sannan mann,
sælust María fæða vann.

2 Ljómar nú jata lausnarans,
ljósið gefur oss nóttin hans.
Ekkert myrkur það kefja kann,
kristin trú býr við ljóma þann.

3 Hæstum föður, á himni og jörð
heiður, lof, dýrð og þakkargjörð,
syni og anda öld af öld
eilíf sé vegsemd þúsundföld.