Sálmur 66

Frumhöf. ók. - Grad. 1732 - Valdimar Briem
Ludvig Matthias Lindeman 1840

HEFJUM upp augu' og hjörtu með,
hjálpræðisstund vor er nærri.
Jesú vér fáum sjálfan séð,
sorg öll og kvíði' er þá fjarri.
Senn kemur eilíf sumartíð,
sólunni fegri', er ljómar blíð
Drottins í dýrðinni skærri.