Sálmur 61

Jóhann Jónsson
Kórlag

 

ÞEIR hringdu hljómþungum klukkum
svo hrannaði loftið af fagnaðarsöng.
Og dagurinn hóf sig af hafi til flugs
yfir húsþök og borgargöng.
"Vorn heim þvær þú hreinan af skuggum
og hjörtu vor ósnortin sorg.
Hósíanna! Hósíanna!
Himinsins sonur, þig hyllir vor borg!"
Og ljóð þeirra gall sem straumfall styrmandi hranna.
Hósíanna! Hósíanna!