Sálmur 59b

Dav. sl. 24 - Weissel - Helgi Hálfdanarson
C.E:F. Weyse 1817 

GJÖR dyrnar breiðar, hliðið hátt.
Þú, Herrans kristni, fagna mátt,
því kóngur dýrðar kemur hér
og kýs að eiga dvöl hjá þér.

2 Hann býður líknar blessað ár,
hann býður dýpst að græða sár,
hann býður þyngstu' að borga sekt,
hann býður aumra' að skýla nekt.

3 Sjá, mildi' er lögmál lausnarans,
sjá, líkn er veldissproti hans.
Því kom þú, lýður kristinn, nú
og kóngi dýrðar fagna þú.

4 Hve sælt það land, hve sælt það hús,
er sælugjafinn líknarfús
sér trútt og hlýðið fundið fær,
þar friður, heill og blessun grær.

5 Hve sælt það hj arta ávallt er,
sem ást til Krists með lotning ber
og honum í sér bústað býr,
að bragði sorg öll þaðan flýr.