Sálmur 59
Dav. sl. 24 - Weissel - Helgi Hálfdanarson
Augsborg 1666 - Sb. 1886
GJÖR dyrnar breiðar, hliðið hátt.
Þú, Herrans kristni, fagna mátt,
því kóngur dýrðar kemur hér
og kýs að eiga dvöl hjá þér.2 Hann býður líknar blessað ár,
hann býður dýpst að græða sár,
hann býður þyngstu' að borga sekt,
hann býður aumra' að skýla nekt.3 Sjá, mildi' er lögmál lausnarans,
sjá, líkn er veldissproti hans.
Því kom þú, lýður kristinn, nú
og kóngi dýrðar fagna þú.4 Hve sælt það land, hve sælt það hús,
er sælugjafinn líknarfús
sér trútt og hlýðið fundið fær,
þar friður, heill og blessun grær.5 Hve sælt það hj arta ávallt er,
sem ást til Krists með lotning ber
og honum í sér bústað býr,
að bragði sorg öll þaðan flýr.6 Gjör dyrnar breiðar, hliðið hátt,
þig, hj arta, prýð sem bezt þú mátt,
og trúarlampann tendra þinn,
og til þín bjóð þú Jesú inn.7 Ég opna hlið míns hj arta þér,
ó, Herra Jesús, bú hjá mér,
að fái hjálparhönd þín sterk
þar heilagt unnið náðarverk.8 ó, kom, minn Jesús, kom sem fyrst,
ó, kom og mér í brjósti gist,
ó, kom þú, segir sála mín,
ó, seg við mig: Ég kem til þín.