Sálmur 58

Danskur ók. höfundur - Páll J. Vídalín - Stefán Thorareensen
Jakob Regnart 1574 - Grad. 1691

Þú brúður Kristi kær,
ó, kom, þín heill er nær.
Þig nálgast góður gestur,
þinn Guð og vinur beztur.
Hósanna, dýrð sé drottni,
hans dýrðin aldrei þrotni.

2 Frá inni út þér flýt
og elskhuga þinn lít.
Veit lávarð þínum lotning
með lofgjörð, Síons drottning.
Hósanna, dýrð sé Drottni,
hans dýrðin aldrei þrotni.

3 Í hjarta hógværð býr,
hann hóglega' að þér snýr
og gj afir helgar hefur,
er heitmey sinni' hann gefur.
Hósanna, dýrð sé Drottni,
hans dýrðin aldrei þrotni.

4 Dreif kvistum konungs leið,
þín klæði' á veginn breið,
í höndum haf þú pálma,
syng hátíðlega sálma.
Hósanna, dýrð sé Drottni,
hans dýrðin aldrei þrotni.

5 Hann líka láttu þá
þín lofa börnin smá.
Með helgum svari hljómi
öll hjörð Guðs einum rómi:
Hósanna, dýrð sé Drottni,
hans dýrðin aldrei þrotni.