Sálmur 35

Davíðssálmur 28
Valdimar Briem
Melchior Franck 1627 / Breytt af Th. Laub 1902 - Sb. 1945

Drottinn minn, Guð, þú ert bjarg mitt og borg,
brugðizt þú getur mér eigi.
Þú ert mitt athvarf í sérhverri sorg,
sól mín á harmanna degi.
Frelsisins merki ég hef upp hátt,
hjálpín úr upphæðum kemur brátt.

2 Drottinn minn, Guð, þú ert vernd mín og vörn
voðans í ólgandi flóði.
Frelsa þú lýð þinn og blessa þín börn,
blessaði faðirinn góði.
Lifandi Drottinn, ég lofa þig,
ljósanna faðír, ó, bænheyr míg.