Sálmur 34

H. A. Brorson - Helgi Hálfdánarson
Bæheimskt lag 1695
M. Praetorius 1610 / Th. Laub 1888 - Sb. 1886

UPP skapað allt í heimi hér,
að heiðra Guð, vorn Drottin,
hið minnsta verk hans mikið er,
um mátt hans allt ber vottinn.

2 Þótt kóngar fylgdust allir að
með auð og veldi háu,
þeir megnuðu' ei hið minnsta blað
að mynda' á blómi smáu.

3 Hvað get ég sagt? Ó, málið mitt
ei megnar, Guð, að lýsa,
hve margt er ástarundur þitt,
hve öflug stjórnin vísa.

4 Ó, miklið Guð, þér menn á jörð,
á málum óteljandi,
ó, míkla Guð, þú hólpin hjörð
á himna dýrðarlandi.