Sálmur 33

Valdimar Briem
A. P. Berggreen 1825 - Sb. 1886

Ég fel mig þinni föðurnáð,
minn faðir elskulegi,
mitt líf og eign og allt mitt ráð
og alla mína vegi.
Þú ræður öllu' og ræður vel
af ríkdóm gæzku þinnar.
Þín stjórn nær jafnt um himins hvel
og hjólið auðnu minnar.

2 Ég fel mig þinni föðurhönd
í freistinganna þrautum.
Mitt styð þú hold og styrk þú önd
og stýr af háskabrautum.
Þótt búi' eg yzt við íshafs skaut,
ég er í skjóli þínu.
Þú stýrir himinhnatta braut
og hverju feti mínu.

3 Ég fel mig þínum föðurarm,
er fast mig sorgir mæða.
Þú einn kannt sefa hulinn harm
og hjartans undir græða.
Hið minnsta duft í mold þú sérð
og mælir brautir stjarna,
þú telur himintungla mergð
og tárin þinna barna.

4 Ég fel mig þinni föðurhlíf,
er fer ég burt úr heimi,
en meðan enn mér endist líf,
mig ávallt náð þín geymi.
Þú yztu takmörk eygir geims
og innstu lífsins parta,
þú telur ár og aldir heims
og æðaslög míns hjarta.