Sálmur 29
Ignaz Franz - Friðrik Friðriksson
Lüneburg 1668 / Vín um 1776 / Leipzig 1819 - Sb. 1945
Mikli Drottinn, dýrð sé þér,
dásemd þína' um aldaraðir
ásamt þínum englaher
allir lofa viljum glaðir,
:,: falla þína fótskör á,
faðir, þína dýrð að sjá. :,
2 Lát þitt ríki lýsa vítt
löndin yfir frið að veita,
láttu fæðast lífið nýtt,
ljós þítt vorum hjörtum breyta,
:,: láttu yfir lönd og höf
ljóma þína sigurgjöf. :,:
3 Helgur andi, heiður þér
hver ein tunga' á jörðu færi.
Faðir, Guð, vér þökkum þér,
þér og Jesús, bróðir kæri.
: Ástar þinnar eilíft ljós
oss sé blessun, vörn og hrós. :,