Sálmur 24
Davíðssálmur 117
Jón Þorsteinsson - Helgi Hálfdánarson
Pétur Guðjohnsen - Sb. 1671
Lofið Guð, ó, lýðir, göfgið hann,
heiðrið Guð, ó, heiðrið föður þann,
tignið Drottins tignarnafn, hans tign ei breytist,
miklið Drottins náðarnafn, hans náð ei þreytist,
mildin hans við menn ei þrýtur,
miskunn hans til aumra lítur,
ástin hans ei enda hlýtur,
eilíf tryggð hans aldrei bregzt.
Öll hans stjórn og umsjá ber um elsku vottinn.
Lofi nafn hans lýður hver, já, lofið Drottin.