Sálmur 23
Davíðssálmur 36
Ingemann - Helgi Hálfdánarson
J. P. E. Hartmann 1852 - Sb. 1886
Þín miskunn, ó, Guð, er sem himinninn há
og hjarta þíns trúfestin blíða,
þinn heilagan vísdóm má hvarvetna sjá
um heims alla byggðina fríða.
2 Sem rammbyggöu fjöllin þín réttvísin er,
sem reginhaf dómur þinn hreini.
Vor Guð, allra þarfir þú glögglega sér
og gleymir ei aumingjans kveini.
3 Já, dásöm er náð þín og dag sérhvern ný,
ó, Drottinn, í skaut þitt vér flýjum.
Vér hræðast ei þurfum í hælinu því,
er hörmunga dimmir af skýjum.
4 Ef sálirnar þyrstir, þú svölun þeim lér,
þær saðning fá hungraðar frá þér.
Vor Guð, þínu' í ljósinu ljós sjáum vér,
og lífsins er uppspretta hjá þér.