Sálmur 22

Frostenson - Sigurbjörn Einarsson
Hollenskt lag

ÞÚ, mikli Guð, ert með oss á jörðu,
miskunn þín nær en geisli á kinn.
Eins og vér finnum andvara morguns,
eins skynjar hjartað kærleik þinn.

2 Í dagsins iðu, götunnar glaumi,
greinum vér þig með ljós þitt og frið.
Hvar sem ein bæn er beðin í hljóði,
beygir þú kné við mannsíns hlið.

3 Hvar sem er unnið, hugur þinn starfar,
hús vor og tæki eru þín verk.
Þú vilt vér teljum vort það, sem gefur
vizkan þín rík og höndin sterk.

4 Djúp er þín lind, sem lífgar og nærir,
lófinn þinn stór, vort eilífa hlé.
Gjör þú oss, Kristur, Guðs sonur góði,
greinar á þínu lífsins tré.