Sálmur 21

Davíðssálmur 23
Valdimar Briem

J. A. P. Schulz - Sb. 1886

MINN Guð og Herra' er hirðir minn,
mér hjálpararm hann réttir sinn.
Ég veit hann æ mér vill hið bezta,
ég veit hann ei mig lætur bresta
það neitt, er getur gagnað mér,
því góður hirðir Drottinn er.

2 Um blómum stráða, græna grund
mig Guðs míns leiðir föðurmund
að svalalindum sílfurskærum
og svalar mér úr lækjum tærum.
Hans líknarhöndin hressir mig
og hjálpar mér á réttan stig.

3 Og þótt ég gangi' um dauðans dal,
hans dimma mér ei ógna skal.
Ef geng ég trúr á Guðs míns vegi,
mér grandar dauðinn sjálfur eigi.
Þín hrísla' og stafur hugga mig,
minn hirðir, Guð, ég vona' á þig.