Sálmur 20

Valdimar Briem
A. P. Berggreen 1856 - Sb. 1886

Guð, allur heimur, eins í lágu' og háu,
er opin bók, um þig er fræðir mig,
já, hvert eitt blað á blómi jarðar smáu
er blað, sem margt er skrifað á um þig.

2 Þá morgunsólin upp í austri stígur,
á æðra himinljós hún bendir mér,
og þá er sólin hægt í vestri hnígur,
á hvíld og frið hún bendir mér hjá þér.

3 Þá allt til lífsins vorið fagra vekur,
það von til þín í brjósti glæðir mér,
og þegar aftur hausta' og húma tekur,
það hvetur mig að leita skjóls hjá þér.

4 Þá yfir löndin stormur geisar stríður,
með sterkum róm hann boðar almátt þinn,
og þá um vanga blærinn leikur blíður,
hann boðar þú sért ljúfur faðir minn.

5 Þá eldur skær með björtum loga brennur,
hann birtir skýrt, að heit þín gæskan er,
og svalalind, er sífellt áfram rennur,
hún sýnir, að þín miskunn aldrei þver.

6 Þá heyri eg glaða himinfugla syngja,
þeir hrósa þinni dýrð, sem öllum skín,
og andvörp þau, er einatt hjörtun þyngja,
þó upp um síðir leita, Guð, til þín.

7 Ó, veit mér, Guð, þín verk ég skoða megi,
þau veri jafnan hjartans unun mín.
Og þótt þín hátign holdið stundum beygi,
mitt hjarta reisir aftur náðin þín.