Sálmur 19

Gellert - Þorsteinn Gíslason
J. Joachim Quantz 1760 eftir lagi frá 1758 - Sb. 1945

ÞITT lof, ó Drottinn vor,
himnarnir hljóma,
þitt heilagt nafnið prísa ber.
Vor jörð skal söngvana enduróma:
Þú alheims stýrir, lof sé þér.
Þú reistir hvelfingar himinsins heima,
þín hönd gaf ljósið skærri sól.
Þú ekur sigrandi gegnum geima
á geislans braut að yzta pól.