Sálmur 17
Wexels - Stefán Thorarensen
A. P. Berggreen 1870 - Sb. 1886
SÉRHVERT ljós um lífsins nótt,
hugsvölun í hverjum þrautum,
hverja gleði' á lífsins brautum,
sérhvert lán og gæðagnótt,
allt hið fagra', er augað lítur,
andinn hvað sem dýrlegt veit,
alla sælu', er hjartað hlýtur,
Herra, skóp þín elskan heit.
2 Alls hins góða er hún rót,
lind, er heilsu lífsins geymir,
lind, er rík af blessun streymir,
lindin, allra eymda bót,
lind, er heillum lýði vefur,
lind, er helgan veitir auð,
lind, er fegurð lífí gefur,
lind, er vekur hjörtun dauð.
3 Ó, þú, Drottinn dýrðarhár,
föðurást þín aldrei sefur,
Eden nýja hún oss gefur,
þvær af syndir, þerrar tár.
Fyrir Jesú, frelsið manna,
fyrirgafst þú líka mér.
Líf og himinsælu sanna
sé ég búna' í faðmi þér.