Sálmur 16c
Gellert - Valdimar Briem
Thomas Tallis 1561 - Stytt, London 1621
úts. Sálmabók 1997
Ó herra Guð, þér heiður ber,
mitt hjarta lofgjörð flytur þér.
Þú annazt minn æ hefur hag,
þín hönd mig geymdi nótt og dag.
2 Þá réttum vegi veik ég frá
og villtist lasta brautir á,
þín föðurgæska guðdómleg
mér greiddi' að nýju réttan veg.
3 Þá huggun þráði hjarta mitt,
þú huldir stundum auglit þitt.
Þó lézt þú aldrei einan mig,
og aftur náð þín birti sig.
4 Ég alla blessun þakka þér,
sem þinnar líknar vottur er,
en einkum glaður þakka' eg það,
að þú sem barn mig tókst þér að.