Sálmur 12
Gerhardt -
Helgi Hálfdánarson
Nicolaus Herman 1554, 1560 - Sb. 1886
UPP, skepna hver, og göfga glöð
vorn Guð með þakkarfórn,
af ástarverkum eilíf röð
er öll hans voldug stjórn,
er öll hans voldug stjórn.
2 Ó, lofið mesta meistarann,
þér menn, á hverri tíð,
því mikla gjörir hluti hann
um heiminn ár og síð,
um heiminn ár og síð.3 Oss öllum líf og afl og brauð
hann óverðskuldað gaf,
í líkn á vora leit hann nauð
og létti byrðum af,
og létti byrðum af.
4 Vor sól og skjöldur æ hann er,
vort athvarf, traust og hlíf,
vort ljós í dalnum dimma hér,
í dauðanum vort líf,
í dauðanum vort líf.
5 Hann opnar helgan himin sinn,
er heims er lokið vist,
og sínum þangað safnar inn
í samfélag við Krist,
í samfélag við Krist.
6 Ó, lofum allir, lofum hann,
hann lofi rödd og mál,
hann lofi allt, er lofa kann,
hann lofi hjarta' og sál,
hann lofi hjarta' og sál.