Sálmur 11
Dass - Sigurbjörn Einarsson
Færeyskt lag
DROTTINN Guð þitt dýra nafnið skæra
dýrka ber og veita lotning tæra.
Hver tunga, vera
skal vitni bera,
að voldug eru
þín ráð og þér þakkir færa.
2 Guð er Guð, þótt veröld væri eigi,
verður Guð, þótt allt á jörðu deyi.
Þótt farist heimur
sem hjóm og eimur,
mun heilagt streyma
nýtt líf um geim, Guðs á degi.
3 Björgin hrynja, hamravirkin svíkja,
himinn, jörð og stjörnur munu víkja,
en upp mun rísa,
og ráð hans prísa,
hans ríki vísa
og ljósið lýsa og ríkja.