Sálmur 10

Páll Jónsson
Hjá Wormordsen 1539 - Sb. 1871

Vort traust er allt á einum þér,
vor ástarfaðir mildi.
Þín náð og miskunn eilíf er,
það alla hugga skyldi.

2 Þú ert vor stoð og einkahlíf,
svo engu þurfum kvíða,
vor huggun, athvarf, ljós og líf.
Æ, ljúft er því að stríða.

3 Í hverju, sem að höndum ber,
og hvað sem bágt oss mætir,
þín hjálp oss nálæg ætíð er
og allar raunir bætir.

4 Þín forsjón vakir yfir oss,
þín alvöld hönd oss leiðir,
þú linar böl og léttir kross
og lífsins meinum eyðir.

5 Þú græðir hjartans sviðasár,
þú syndir fyrirgefur,
þú stöðvar öll vor angurstár,
þú alla náð umvefur.

6 Þín föðurnáð, æ fersk og ný,
oss föðurgæðum seður
og lífsins kjörum öllum í
oss annast, blessar, gleður.

7 Vort traust er allt á einum þér,
því allt þú gott oss veitir.
Þín náð og miskunn eilíf er,
þú öllu' í sigur breytir.