Sálmur 8
Höfundur ókunnur
Íslensk breyting á lagi frá 16. öld - Sb. 1772
Radds: Róbert A. Ottóson
TUNGA mín vertu treg ei á
að tjá, hvað Guð mér veitti.
Hjartað mitt, einnig herm þú frá,
hversu hann við þig breytti.
Drottinn minn Guð, þig dýrka ég,
dásamur ertu næsta,
sízt skal því vera sál mín treg
að syngja þér lofgjörð hæsta.