Sálmur 7b
Páll Jónsson
Ó, HVAÐ þú, Guð, ert góður,
þín gæska' og miskunn aldrei dvín.
Frá lífi minnar móður
var mér æ nálæg aðstoð þín.
Mig ávallt annazt hefur
og allt mitt blessað ráð,
og mér allt gott æ gefur,
ó, Guð, þín föðurnáð.
Það mér úr minni' ei líði,
svo mikli' eg nafnið þitt
og þér af hjarta hlýði,
þú hjartans athvarf mitt.