Sálmur 4

Heber - Friðrik Friðriksson
J. B. Dykes 1861 - Sb. 1945

DÝRÐ í hæstum hæðum,
himna Guð, þér syngja
allir þínir englar og öll þín hólpin hjörð.
Jörð það endurómar,
allar klukkur hringja,
fagnandi hjörtu færa þakkargjörð.

2 Dýrð í hæstum hæðum.
Helgir leyndardómar
opnast fyrir augum
þess anda', er ljós þitt sér.
Allt, sem anda dregur, elsku þína rómar,
tilveran gjörvöll teygar líf frá þér.

3 Dýrð í hæstum hæðum.
Hingað oss þú sendir
soninn þinn að sýkna hinn seka lýð á jörð.
Síðan hátt til himna
hann með krossi bendir,
sigur hann gefur sinni barnahjörð.

4 Dýrð í hæstum hæðum,
hljómar þér um aldir,
þyrnikrýndur, krossi píndur
kóngur lífs og hels.
Lýtur þér og lofar lýður, sem þú valdir,
lýsandi' á jörð sem ljómi fagrahvels.

5 Dýrð í hæstum hæðum. Heilagri þrenning,
föður, syni' og friðaranda,
færum lofgjörð vér,
göfgi þig með gleði
gjörvöll jarðarmenning,
Guð einn og þrennur, þökk þér einum ber.