Sálmur 3

Davíðssálmur 103
Neander - Helgi Hálfdánarson
Stralsund 1665 - Sb. 1801

Lofið vorn Drottin
hinn líknsama föður, á hæðum
lofið hann allir
með söngvum og vegsemdar ræðum,
lofi hann sál,
lofi hann athöfn og mál,
gnótt hann oss veitir af gæðum.

2 Lofið vorn Drottin,
hann leiðir og verndar og styður,
leysir úr nauðum
og heyrir þess andvörp, er biður,
byggðir um lands
blessaðar ástgjafir hans
drjúpa sem dögg til vor niður

3 Lofið vorn Drottin,
hann ávaxtar iðninnar sveita,
atvinnu synjar ei
þeim, er sér bjargræðis leita,
farsæld og frið
fulltingi, hjástoð og lið
öllum oss virðist hann veita.

4 Lofið vorn Drottin,
er englanna hersveitir hlýða,
hans eftir skipunum
stormar og eldingar bíða,
dýrð honum ber,
himinninn hástóll hans er,
jörðin hans fótskörin fríða.

5 Lofið vorn Drottín,
og takið með englum hans undir,
allir hann vegsamið
lífs yðar gjörvallar stundir,
hátt göfgið hann,
Herrann vorn Guð, sem oss ann,
allar hann lofið á lundir.