Sálmur 1

Davíðssálmur 148
Jón Þorsteinsson - Matthías Jochumsson
Jakob Regnart 1574 - Sb. 1671

Sé Drottni lof og dýrð,
hans dásemd öllum skýrð,
hann lofi englar allir
og æðstu ljóssins hallir,
hann lofi hnattahjólin
og heiðri tungl og sólin.

2 Hann lofi líf og hel
og loftsins bjarta hvel,
hann lofi lögmál tíða,
sem ljúft hans boði hlýða
og sýna veldis vottinn,
ó, veröld, lofa Drottin.

3 Hver þjóð um lög og láð,
ó, lofið Drottins náð,
þér glöðu, hraustu, háu,
þér hrelldu, veiku, lágu,
þér öldnu með þeim ungu,
upp, upp með lof á tungu.

4
Með öllum heimsins her
þig, Herra, lofum vér
af innsta ástar grunni
með öndu, raust og munni.
Vort hjarta bljúgt sig hneigir
og hallelúja segir.